
Tvær nýjar bækur um Kugg
Út eru komnar tvær nýjar smábækur um Kugg eftir Sigrúnu Eldjárn. Í Listahátíð taka Kuggur, Málfríður og mamma Málfríðar sig til og leggja sitt af mörkum til Listahátíðar í Reykjavík. Mamma Málfríðar byrjar reyndar á því að safna saman öllum mögulegum listum, gólflistum, innkaupalistum og félagalistum, en Kuggur og Málfríður eru fljót að leiðrétta misskilninginn.…













