Stútfullt af menningu!

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Tímarit Máls og menningar 1/2014
TMM 1/2014

Út er komið Tímarit Máls og menningar, fyrsta hefti ársins af fjórum, og kennir þar margra grasa eins og löngum fyrr.

Í grein sinni, Áttu eld, sem þegar hefur vakið mikla athygli, notar Svanhildur Óskarsdóttir tækifærið sem hátíðarhöld síðasta árs á afmæli Árna Magnússonar veittu til þess að beina sjónum að því hvernig Íslendingar búa að handritunum sem þeir fengu frá Dönum á síðustu öld, og hvernig sumir ráðamenn virðast líka á það sem óþarfa fjárútlát að sinna þessum þjóðargersemum sem þeim ber og veita þeim sómasamlegan aðbúnað.

Hannes Lárusson skrifar um annars konar þjóðararf: Íslenska bæinn, sögu hans og þróun, setur meðal annars fram skemmtilega kenningu um að skorturinn á miðju sé eitt megineinkenni á meðhöndlun Íslendinga á rými og nokkurs konar fagurfræðileg forskrift þeirra.

Úlfhildur Dagsdóttir fjallar líka á sína vísu um menningararf okkar, því að hún beinir sjónum að meðferð bandarískra hasarblaðahöfunda og seinna kvikmyndagerðarmanna í Hollywood á heiðnum goðum á borð við Þór og Loka.

Annars konar myndlistarumfjöllun er svo að finna í grein Ólafs Gunnarssonar rithöfundar um málverk Sigurðar Örlygssonar þar sem skrifað er af ástríðu og ást um verk sem lýsa miklum átökum og harmi.

Stefán Steinsson læknir skrifar af leiftrandi fjöri um þýðingu sína á þeim gríska föður sagnfræðinnar, Heródótusi, sem kom út fyrir síðustu jól en Þorsteinn Antonsson stundar öllu yngra sagnfræðigrúsk þegar hann hefur grafið upp bréf sem Steinn Steinarr skrifaði Erlendi í Unuhúsi.

Þórunn Erlu Valdimarsdóttir birtir líka gamalt efni úr fórum móður sinnar, Erlu Þórdísar Jónsdóttur, en fyrir síðustu jól sendi Þórunn frá sér verðlaunabókina Stúlka með maga, þar sem Erla móðir hennar er í senn sögumaður og aðalpersóna.

Jón Óskar Sólnes deilir með okkur merkilegri lífsreynslu frá Sri Lanka þar sem hann starfaði um hríð við friðargæslu.

Að auki eru sem fyrr sögur og ljóð eftir ýmsa höfunda í heftinu og einnig ýtarlegir ritdómar.

Ritstjóri Tímarits Máls og menningar er Guðmundur Andri Thorsson

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd