Nýjar raddir 2027

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir.

Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð), ætlað fyrir fullorðna. Haft verður samband við vinningshafa þegar úrslit liggja fyrir en skýrt er opinberlega frá vinningshafa á útgáfudegi á árinu 2027.

Í dómnefnd sitja Silja Aðalsteinsdóttir, rithöfundur og ritstjóri, Atli Bollason bókmenntafræðingur og Elín Edda Pálsdóttir, verkefnastjóri hjá Forlaginu.

Handrit skulu send undir nafni höfundar ásamt kynningu á honum og fyrri ritstörfum á netfangið nyjarraddir@forlagid.is.

Skiladagur handrita er 2. nóvember 2026.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Andri Snær Magnason sæmdur riddarakrossi fálkaorðunnar

Rithöfundurinn Andri Snær Magnason, einn af höfundum Forlagsins, var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu á þjóðhátíðardaginn fyrir skapandi störf í þágu framtíðar. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, sæmdi fjórtán einstaklinga heiðursmerki orðunnar við hátíðlega athöfn á Bessastöðum 17. júní. Hin íslenska fálkaorða er æðsta heiðursmerki sem íslenska ríkið veitir. Andri Snær hefur á löngum og farsælum…

Karfan þín

Valmynd