Arndís Þórarinsdóttir

Forlagshöfundur

13 bækur

Arndís Þórarinsdóttir

Arndís Þórarinsdóttir er fædd árið 1982. Hún er með BA-próf í almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands og MA-próf í ritlist frá Goldsmiths College, University of London, og Háskóla Íslands.

Arndís skrifar bæði fyrir börn og fullorðna og hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar fyrir verk sín. Árið 2020 var hún tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki skáldverka fyrir ljóðabók sína Innræti. Ári síðar hlaut hún tilnefningu til sömu verðlauna í flokki barna- og ungmennabóka fyrir Bál tímans en sú bók var jafnframt tilnefnd til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar og Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Kollhnís, sem kom út árið 2022, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin, Fjöruverðlaunin og Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar og var tilnefnd til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.

Arndís hefur auk þess skrifað tvær barnabækur í félagi við Huldu Sigrúnu Bjarnadóttur. Sú fyrri, Blokkin á heimsenda, hlaut Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur og Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki barna- og ungmennabóka en hún var auk þess tilnefnd til Barnabókaverðlauna Reykjavíkur og Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Jafnframt var þýsk þýðing bókarinnar tilnefnd til Þýsku barnabókaverðlaunanna (Deutschen Jugendliteraturpreis ) árið 2024 í flokki skáldverka fyrir börn. Önnur barnabók Arndísar og Huldu, Mömmuskipti, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2023 og Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar. Árið 2025 kom út fyrsta bók Arndísar og Huldu fyrir fullorðna, gamansama glæpasagan Morð og messufall.

Verk Arndísar hafa komið út í Danmörku, Eistlandi, Finnlandi, Hollandi, Ítalíu, Rússlandi, Spáni, Þýskalandi og Tékklandi og þýðingar á ungversku, frönsku, kínversku og makedónsku eru væntanlegar.

Arndís hefur jafnframt fengist við ýmiss konar þýðingar.

Sía niðurstöður

Hreinsa
Flokkar
Snið
Verð
0 kr.5.000 kr.+

Sýnir 1–13 af 13 bókum

Undir 5.000 kr.
BABB – Arndís Þórarinsdóttir og Hulda Sigrún Bjarnadóttir
  • Innbundin
  • Rafbók

BABB

Arndís Þórarinsdóttir og Hulda Sigrún Bjarnadóttir

frá 3.290 kr.

Sólgos – Arndís Þórarinsdóttir
  • Innbundin
  • Mjúk spjöld
  • Rafbók

Sólgos

Arndís Þórarinsdóttir

frá 3.290 kr.

Morð og messufall – Arndís Þórarinsdóttir og Hulda Sigrún Bjarnadóttir
  • Kilja
  • Rafbók

Morð og messufall

Arndís Þórarinsdóttir og Hulda Sigrún Bjarnadóttir

frá 2.990 kr.

Mömmuskipti – Arndís Þórarinsdóttir og Hulda Sigrún Bjarnadóttir
  • Innbundin
  • Rafbók

Mömmuskipti

Arndís Þórarinsdóttir og Hulda Sigrún Bjarnadóttir

frá 2.990 kr.

Kollhnís – Arndís Þórarinsdóttir
  • Innbundin
  • Rafbók

Kollhnís

Arndís Þórarinsdóttir

frá 2.990 kr.

Bál tímans – Arndís Þórarinsdóttir og Sigmundur Breiðfjörð Þorgeirsson
  • Innbundin

Bál tímans

Arndís Þórarinsdóttir og Sigmundur Breiðfjörð Þorgeirsson

4.090 kr.

Innræti – Arndís Þórarinsdóttir
  • Mjúk spjöld

Innræti

Arndís Þórarinsdóttir

3.890 kr.

Karfan þín

Valmynd