Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Mömmuskipti
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2023 | 246 | 5.490 kr. | ||
Rafbók | 2023 | - | 2.990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2023 | 246 | 5.490 kr. | ||
Rafbók | 2023 | - | 2.990 kr. |
Um bókina
Linda hefur alltaf verið frægari en hana langar. Samfélagsmiðladrottningin mamma hennar tjáir sig óspart um fjölskyldulífið á netinu og barnamynd af Lindu er þekkt um allan heim. Sjálf vill hún helst af öllu fá að vera í friði og æfa parkúr án þess að fólk fatti að hún sé klósettkrakkinn.
En nú versnar í því! Mamma Lindu er einn af áhrifavöldunum sem keppa um pláss í raunveruleikaþættinum Mömmuskiptum. Barbara systir er æsispennt, pabba virðist standa á sama og enginn hlustar á hávær mótmæli Lindu. Ef allt fer á versta veg fá þau glænýja mömmu í heilan mánuð og heimsbyggðin mun fylgjast með!
ATH. Spurt og svarað um rafbækur.
3 umsagnir um Mömmuskipti
embla –
Ragnheiður Birgisdóttir / Morgunblaðið
embla –
„Frumleg saga sem fjallar á meinfyndinn en einlægan hátt um líf barna hinna svokölluðu áhrifavalda. Hvers virði er einkalífið? Er hægt að setja það upp í súlurit og kökur? Hve mikið ætlum við að láta snjalltækin stjórna lífi okkar?“
Umsögn dómnefndar Íslensku bókmenntaverðlaunanna
embla –
„Mömmuskipti er fjörug, stórfyndin og virkilega vel skrifuð barnabók. Ég mæli með henni helst í alla jólapakka því innihaldið mun gleðja hvern einasta fjölskyldumeðlim og jafnvel brydda upp á samræðum um virkilega mikilvæg málefni um réttindi barna í heimi samfélagsmiðla.“
Rebekka Sif Stefánsdóttir / Lestrarklefinn