Um bókina
Bananar eru mest seldu ávextir á Íslandi, en Pálmi veit álíka mikið um banana og flest okkar – sama sem ekki neitt. Hann er nýfluttur í blokk þar sem hann þekkir engan og honum leiðist óskaplega. Þegar foreldrar hans gefa honum framandi túkanfugl hressist Pálmi við, allt þar til fuglinn sleppur út í hrímkalt skammdegið.
Í leit sinni að túkaninum berst Pálma óvæntur liðsauki, Fífa, og saman leggja þau í ævintýrlegan björgunarleiðangur sem leiðir þau undir snjóinn og inn í stórmerkilegt bananasafn. Vissir þú að banani er ber? Að það eru til bláir bananar og rauðir? Að apar eru í raun hrifnari af vínberjum en banönum? En það er eitthvað bogið við þessa undirheima …
Rán Flygenring er margverðlaunaður höfundur og teiknari. Hún hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir Tjörnina og bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir Eldgos.













