Hungurleikarnir

Barna- og unglingabækur

Hungurleikarnir

eftir Suzanne Collins

2012 · 375 bls.

Veldu snið

4.490 kr.

Til á lager

Um bókina

Á hverju ári skipa yfirvöld í Kapítól umdæmunum tólf í Panem að senda einn strák og eina stelpu að keppa á Hungurleikunum. Keppnin er sýnd í beinni útsendingu og reglurnar eru einfaldar – sá sigrar sem heldur lífi.

Hin sextán ára Katniss Everdeen vekur athygli um allt Panem þegar hún býðst til að taka þátt í Hungurleikunum í stað systur sinnar. Með henni úr Tólfta umdæmi fer bakarasonurinn Peeta. Líkurnar á að þau lifi af eru sáralitlar en Katniss hefur meiri sjálfsbjargarviðleitni en flestir aðrir og Peeta leikur leikinn alveg á nýjan máta.

Hungurleikarnir er fyrsta bókin í æsispennandi bókaflokki Suzanne Collins en bækurnar fóru sigurför um heiminn, sátu árum saman á metsölulistum og eftir þeim voru gerðar geysivinsælar kvikmyndir. Þær hafa verið þýddar á yfir fimmtíu tungumál og selst í meira en 100 milljónum eintaka.

Karfan þín

Valmynd