Nærbuxnanjósnararnir

Barna- og unglingabækur

Nærbuxnanjósnararnir

eftir Arndís Þórarinsdóttir

2019 · 112 bls.

Veldu snið

4.290 kr.

Til á lager

Um bókina

Í Brókarenda snýst lífið enn um nærbuxur.

Í gömlu verksmiðjunni er líf og fjör alla daga undir styrkri stjórn ömmu Lenu en nú er hún í útlöndum og eitthvað dularfullt á seyði. Kona sem segist vera húsvörður lokar Gutta og Ólínu úti og þegar þau komast loksins inn sjá þau að ýmislegt er horfið, til dæmis kanínumamman Snæfríður og innrammaða blúndubrókin sem kóngurinn átti. Vinirnir þurfa greinilega að grípa til sinna ráða!

Nærbuxnanjósnararnir er sjálfstætt framhald Nærbuxnaverksmiðjunnar eftir Arndísi Þórarinsdóttur sem hlaut frábærar viðtökur þegar hún kom út.

Sigmundur Breiðfjörð Þorgeirsson myndskreytti.

Karfan þín

Valmynd