Frakkar hrifnir af Árna
Vefmiðlar segja í dag frá því að útgáfuréttur á nýjustu bók Árna Þórarinssonar, Morgunengli, hafi verið seldur til Frakklands en fyrri bækur Árna hafa notið mestu hylli víða um lönd upp á síðkastið. Meira um málið á mbl.is.
Fréttir frá Forlaginu: nýjar bækur, höfundar, viðburðir og verðlaun.
Vefmiðlar segja í dag frá því að útgáfuréttur á nýjustu bók Árna Þórarinssonar, Morgunengli, hafi verið seldur til Frakklands en fyrri bækur Árna hafa notið mestu hylli víða um lönd upp á síðkastið. Meira um málið á mbl.is.

Sigrún Pálsdóttir var á dögunum tilnefnd til Hinna íslensku bókmenntaverðlauna fyrir bók sína Þóra biskups og raunir íslenskrar embættismannastéttar og bókin hefur hlotið glæsilegar viðtökur. Að hana dreymdi litla um að verða geimfari og að hún varð eitt sinn afar lúpuleg í tölfræðitíma í Oxford er meðal þess sem lesa má í bráðskemmtilegri yfirheyrslu yfir…

Glænýjar jólabækur flæða nú um búðarborð og barist er um sæti á metsölulistum. Sumar bókanna fara þó hægt og hljótt um bókamarkaðinn og komast samt í efstu sætin. Ein þessara – og kannski óvæntasta metsölubókin þessi jólin – er fyrsta bindi æviminninga Tryggva Emilssonar, Fátækt fólk. Hún kom fyrst út árið 1976 en hefur nú…

Síðastliðið sunnudagskvöld (6/12) kom saman á Café Rosenberg fríður hópur manna og kvenna. Þórunn Erlu- og Valdirmarsdóttir hafði safnað saman vinum og ættingjum til að fagna útkomu nýrra bóka. Fyrstur á svið var Gunnar Theodór Eggertsson, sonur Þórunnar, með bók sína Köttum til varnar (ágóðinn rennur til Kattholts). Þórunn kynnti bók sína Mörg eru ljónsins…

Þriðjudaginn 7. desember gengst Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála í Háskóla Íslands fyrir áhugaverðum hádegisfundi undir yfirskriftinni Gunnar Thoroddsen. Hver verður dómur sögunnar? Fer fundurinn fram í stofu 101 í Odda og hefst kl. 12. Þar verður rætt bók Guðna Th. Jóhannessonar, Gunnar Thoroddsen – Ævisaga sem nýlega var tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna. Einkum verður sjónum…

Við vekjum athygli yngri kynslóðarinnar á því að Dísa ljósálfur mun heimsækja, ásamt góðvini sínum býflugunni, bókabúðir Eymundsson í Smáralind og Austurstræti á morgun, laugardaginn 4. desember. Þau vinirnir munu troða upp með leik og söng í Smáralind kl. 13 en fljúga svo niður í miðbæ og verða í Austurstræti kl. 15. Söngleikurinn um Dísu…

Eldhúsöðlingurinn Nanna Rögnvaldardóttir verður á ferð og flugi um helgina. Hún býður smakk úr nýjustu bók sinni, Smáréttir Nönnu, í Eymundsson Norður-Kringlu kl. 15 á laugardaginn og á sunnudaginn verður hún í Eymundsson Smáralind, einnig kl. 15. Bækur Nönnu hafa notið gríðarlegra vinsælda og verið hafðar uppi á ótal eldhúsbekkjum um áraraðir. Í nýju bókinni…

Hugbúnaðarhúsið Fancy Pants Global hefur gefið út tölvuleikinn Maximus Musicus fyrir iPhone, iPad og iPod Touch. Leikurinn er byggður á vinsælum barnabókum Hallfríðar Ólafsdóttur og Þórarins Más Baldurssonar um forvitnu og tónelsku músina Maxímús Músíkús þar sem hann fræðist um heim tónlistarinnar og hljóðfæranna. Leikurinn samanstendur af sjö smáleikjum sem koma inn á mismunandi þætti…

Tilkynnt var um tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna við hátíðlega athöfn í Listasafni Íslands í gær. Í flokki skáldverka voru tilnefndar bækurnar Blóðhófnir eftir Gerði Kristnýju, Mörg eru ljónsins eyru eftir Þórunni Erlu-Valdimarsdóttur, Dýrin í Saigon eftir Sigurð Guðmundsson og Handritið að kvikmynd Arnar Featherby og Jóns Magnússonar um uppnámið á veitingahúsinu eftir Jenný Alexson eftir…

Það er sjaldgæft að ljóðabækur seljist upp hér á landi strax á útgáfuári. Algengara er að þær seljist hægt og á lengri tíma. Þær fréttir berast þó nú af lager Forlagsins að margar nýjar ljóðabækur þar séu uppseldar eða við það klárast. Fyrstu upplög bókanna Ljóð af ættarmóti eftir Anton Helga Jónsson, Blóðhófnir eftir Gerði…

Í dag veitti Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands og Hugvísindasvið þremur íslenskum rithöfundum heiðursdoktorsnafnbót við hátíðlega athöfn í Hátíðasal skólans. Þetta voru Álfrún Gunnlaugsdóttir, Matthías Johannessen og Thor Vilhjálmsson. Dr. Dagný Kristjánsdóttir, deildarforseti Íslensku- og menningardeildar, stýrði athöfninni en dr. Ástráður Eysteinsson forseti Hugvísindasviðs mælti fyrir gjörningnum. Athöfnin fór síðan þannig fram að fyrst var…
Ef maður rekst á barn þessa dagana að fara rímað kvæði, ískrandi af kátínu, eru yfirgnæfandi líkur á að það sé eftir Þórarin Eldjárn. Barnaljóðin hans hafa í áratugi notið gríðarlegra vinsælda hjá fólki á öllum aldri, leikskólabörnum jafnt sem ellilífeyrisþegum. Það má jafnvel fullyrða að ef Íslendingar kunna ennþá að ríma og stuðla eftir…

Svavar Gestsson fyrrverandi ráð- og sendiherra fjallaði nýverið um nýjustu bók Þórunnar Valdimarsdóttur, Mörg eru ljónsins eyru, á vef sínum. Það er ljóst að Þórunn á vísan stað í bókhillum á þeim bænum og nýjasta verk hennar svíkur ekki. Svavar segir: „Þórunn Valdimarsdóttir er mikill uppáhaldshöfundur á mínum bæ. Það gerir ekki síst Matthías Jochumsson.…

Í Salnum í Kópavogi er rekin metnaðarfull tónlistardagskrá fyrir börn undir heitinu Töfrahurð. Sunnudaginn 5. desember verður frumfluttur þar ballett sem gerður er eftir sögu Guðrúnar Helgadóttur Englajól. Höfundur tónlistarinnar er Elín Gunnlaugsdóttir en flytjendur verða kammerhópur Sheherazade og dansarar úr Listdansskóla Íslands. Sýningin verður á sunnudaginn kemur kl. 13. Húsið opnar kl. 12.30 og…

Ófeigur Sigurðsson, höfundur Skáldsögu um Jón, er spurður spjörunum úr á Miðjunni og kemur upp um alls konar vafasamar tilhneigingar. Til dæmis fannst honum óheyrilega leiðinlegt að vinna á pitsastað og langaði mest til að vera rallýökumaður þegar hann var lítill. En ef hann hefði núna allan tíma í heiminum og nóga peninga myndi hann…

Sunday Times í London hefur valið Hreinsun eftir Sofi Oksanen eina af bestu bókum ársins 2010. Í greininni sem John Dugdale skrifar segir m.a.: „Árið hefur verið firnagott glæpasagnaár en þar ber Sofi Oksaen af með bók sína Hreinsun. Þetta er algerlega einstæð fjölskyldusaga sem stefnir saman ungri stúlku á flótta undan kynlífsþrælasölum og gamalli…