
Ópera eftir Sjón valin sú besta í Evrópu
Óperan Sjö steinar eftir Sjón og tékkneska tónskáldið Ondřej Adamek hefur hlotið evrópsku FEDORA–Generali verðlaunin sem besta frumsamda ópera ársins 2018. Uppistaða líbrettós verksins er ljóðabók Sjóns Söngur steinasafnarans og segir þar frá steinasafnara sem safnar steinum sem tengjast þekktum persónum og atburðum í heimssögunni. Söfnunaráráttan tekur af honum völdin og verður til þess að…















