,,þú ert okkar Astrid Lindgren og Tove Jansson“ – Guðrún Helgadóttir hlýtur Sögusteininn, heiðursverðlaun IBBY á Íslandi

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Guðrún Helgadóttir hlaut í dag Sögusteininn, heiðursverðlaun IBBY á Íslandi fyrir framlag hennar til íslenskra barnabókmennta. Forseti Íslands, herra Guðni Th. Jóhannesson, afhenti Guðrúnu verðlaunin í Hörpu og um leið og hann þakkaði henni fyrir allar bækurnar sem hún hefur gefið þjóðinni lét hann þessi sönnu orð falla: ,,þú ert okkar Astrid Lindgren og Tove Jansson.“

Heiðursverðlaunin sækja nafn í gamla þjóðsögu um töfrastein sem gat sagt þeim endalausar sögur sem var svo heppinn að finna hann. Þau eru veitt á nokkurra ára fresti til þeirra sem hafa með höfundarverki sínu lagt hvað mest af mörkum til að auðga og efla íslenska barnamenningu.

Guðrún hefur glatt bæði unga lesendur og aldna frá því að fyrsta bókin um Jón Odd og Jón Bjarna kom út árið 1974. Síðan hefur hún sent frá sér fjölda bóka og annarra verka sem glatt hafa hjörtu bæði barna og fullorðinna.

Sögusteinn IBBY 2018

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd