Ópera eftir Sjón valin sú besta í Evrópu

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Óperan Sjö steinar eftir Sjón og tékkneska tónskáldið Ondřej Adamek hefur hlotið evrópsku FEDORA–Generali verðlaunin sem besta frumsamda ópera ársins 2018.

Uppistaða líbrettós verksins er ljóðabók Sjóns Söngur steinasafnarans og segir þar frá steinasafnara sem safnar steinum sem tengjast þekktum persónum og atburðum í heimssögunni. Söfnunaráráttan tekur af honum völdin og verður til þess að hann gleymir öllu öðru og fremur að lokum voðaverk sem hann berst svo við að gleyma.

Í dómnefnd verðlaunanna sátu meðal annarra Nicholas Payne fyrrverandi óperustjóri Ensku þjóðaróperunnar og Konunglegu óperunnar í Covent Garden, Birgitta Svendén óperustjóri Konunglegu sænsku óperunnar og Christina Scheppelmann listrænn stjórnandi Liceu óperuhússins í Barselóna.

Umsögn nefndarinnar um verðlaunaverkið er eftirfarandi:

Þessi frumlega ópera, samin af hinu unga tékkneska tónskáldi Ondřej Adamek og íslenska skáldinu Sjón, er boð í æsilegt ferðalag um menningarheima Argentínu, Íslands, Japans og Frakklands. Í þessu nútímalega óperuverki vaknar allt til lífsins í fordæmalausri upplifun sem tvinnar söng, talrödd og hvísl saman við mikilfenglegar hljóðfærasmíðarnar sem jafnframt skapa sviðsmyndina. SJÖ STEINAR er samtímaópera sem mun víkka út landamæri.

Óperan Sjö steinar var pöntuð af einni virtustu óperuhátíð heims, hátíðinni í Aix-en-Provence, og verður frumsýnd þar í borg þann 7. júlí næstkomandi. Verðlaunaféð nemur 150.000 evrum og rennur það til uppsetningar verksins og fyrirhugaðra ferðalaga með það.

 

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd