Kristín, Magnea og Rán hljóta Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar 2018

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Við óskum handhöfum Barna­bóka­verðlauna Reykja­vík­ur­borg­ar 2018 hjartanlega til hamingju!

Dag­ur B. Eggerts­son borg­ar­stjóri af­henti Barna­bóka­verðlaun Reykja­vík­ur­borg­ar við hátíðlega at­höfn í Höfða í dag og tilkynnti að frá og með næsta vori yrðu árlega veitt sérstök barnabókaverðlaun í nafni Guðrúnar Helgadóttur, eins vinsælasta og virtasta barnabókahöfundar landsins.

Kristín Helga Gunnarsdóttir skáldkona hlaut verðlaunin í flokki frumsaminna barnabóka fyrir bók sína Vertu ósýnilegur sem Mál og menning gaf út á liðnu ári.

Í umsögn dómnefndar segir m.a: “Í liprum og raunverulegum lýsingum er fjallað um baráttu fólks til að lifa venjulegu lífi í hringiðu hrikalegra stríðsátaka. Á sama tíma er fjallað af nærfærni um viðkvæmar tilfinningar unglinga og ungs fólks, samskipti og samskiptavanda. “

Magnea J. Matthíasdóttir fékk Barnabókaverðlaunin fyrir þýðingu sína á bókinni Kvöldsögur fyrir uppreisnargjarnar stelpur eftir Elenu Favilli og Francescu Cavallo sem Mál og menning gaf út.

Í umsögn dómnefndar segir: “Þýðing Magneu nær vel utan um snarpan og einfaldan stíl bókarinnar og framkallar það sem höfundarnir óska sér; löngun til að leita meiri upplýsinga um hverja og eina af hundrað stelpum sem á ýmsan máta voru og eru uppreisnargjarnir brautryðjendur.”

Verðlaun fyrir bestu myndskreytingu komu í hlut Ránar Flygenring fyrir teikningar í bókinni Fuglar eftir þau Hjörleif Hjartarson sem Angústúra gaf út 2017.

Í umsögn dómnefndar segir: “Persónuleiki íslenskra fugla, þeirra daglega amstur og umhverfi er dregið upp á einstaklega skemmtilegan hátt. Í teikningum Ránar er mátuleg blanda af kæruleysi og vandvirkni, skopi og alvöru. Texti og myndir skapa sterka heild og vitna um litanæmi og listfengi. Magnaðar teikningar sem vekja áhuga ungra lesenda, og lesenda á öllum aldri, á fræðandi efni.”

Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar eru elstu fagverðlaun fyrir barnabókmenntir á landinu og hafa verið veitt óslitið frá árinu 1973 með það að markmiði að vekja athygli á gildi góðra bókmennta í uppeldisstarfi og því sem vel er gert í bókaútgáfu fyrir börn og ungmenni.

Frekari upplýsingar um tilnefnda titla og verðlaunahafa má finna hér.

Myndir: Reykjavíkurborg

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd