
Íslensku barnabókaverðlaunin – dómnefnd hefur komist að niðurstöðu
Tuttugu handrit bárust í samkeppnina um Íslensku barnabókaverðlaunin að þessu sinni, en í haust verða verðlaunin veitt í þrítugasta sinn. Dómnefndarmenn hafa legið í lestri síðan skilafresturinn rann út í byrjun febrúar en hafa nú valið verðlaunahandritið og fært höfundi þess fréttirnar. Nafn höfundarins verður ekki gert opinbert fyrr en verðlaunin verða afhent og verðlaunabókin…














