Ertu að drukkna í drasli? KonMari-aðferðin er svarið!

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Marie Kondo

Bók hinnar japönsku Marie Kondo, Taktu til í lífi þínu!, hefur farið sannkallaða sigurför um heiminn, selst í yfir 5 milljón eintökum og breytt lífi enn fleiri!

Er óreiðan á heimilinu að fara með þig? Allar skúffur troðfullar og skáparnir að springa? Staflar og hrúgur í öllum herbergjum, sama hve oft er tekið til? Þá gæti verið tímabært að grisja. Fara skipulega í gegnum allar eigur þínar, losa þig við það sem þú þarfnast ekki og veitir þér enga gleði, og raða því sem eftir er af skynsemi í hirslurnar.

Vinsældir aðferðarinnar sem Marie Kondo kynnir í þessari bók hafa í raun verið með ólíkindum, að hfarið sigurför um heiminn enda er hugmyndafræðin að baki henni bæði snjöll og einföld. Og þegar heimilið er orðið snyrtilegt í eitt skipti fyrir öll, hlutirnir færri og skipulagið betra, þá rofar líka til í huganum: hugsunin skýrist, sjálfstraustið eykst og verkefnin framundan verða yfirstíganleg.

Listin að grisja og endurskipuleggja með japönsku KonMari-aðferðinni er lykill að nýju og betra lífi!

Hér má sjá fyrirlestur Marie Kondo hjá Google.

Skemmtilegt innslag hjá Ellen.

Reynslusaga pistlahöfundar hjá The Telegraph.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd