Þegar Trölli stal jólunum

Barna- og unglingabækur

Þegar Trölli stal jólunum

eftir Dr. Seuss og Þorsteinn Valdimarsson

2024 · 60 bls.

Veldu snið

5.290 kr.

Til á lager

Um bókina

Hann glápti ofan úr helli sínum

og grettist eins og tröll.

Í gluggunum í neðra

voru tendruð ljósin öll.

Trölli þolir ekki jólin en í næsta nágrenni við hann, í Þeim-bæ, eru þau haldin hátíðleg með mat og drykk, söng og gjöfum. Eitt árið fær Trölli nóg. Hann arkar af stað nóttina áður en jólin ganga í garð og fjarlægir allt sem minnir á þau. Honum til mikillar furðu hljóma samt jólasöngvar að morgni og Trölla skilst að jólin felast ekki í steikinni, trénu eða pökkunum – heldur í hjörtum mannanna.

Íslensk börn kynntust Trölla fyrst árið 1974 þegar Þorsteinn Valdimarsson íslenskaði þekkt kvæði Dr. Seuss frá árinu 1957.

 

Karfan þín

Valmynd