Sturla: Tvíburaveiðar

Barna- og unglingabækur

Sturla: Tvíburaveiðar

eftir Gunnar Helgason

2026 · 351 bls.

Veldu snið

5.890 kr.

Til á lager

Um bókina

Regína og Litlavin eru eins ólíkar og hægt er. Auk þess ólst Regína upp hjá hertoganum í Normandí en Litlavin á Íslandi, hjá fátækum vinnuhjúum sem sögðu henni aldrei sannleikann um uppruna hennar. 

Á fjórtán ára afmælisdegi þeirra birtist dularfullt fólk hjá þeim báðum. Fólk sem er með drekapeð í fórum sínum og ætlar að – haltu þér fast – veiða þær. En af hverju? Hverjar eru þessar stelpur?
Talandi hani, brjálaður búálfur og sætur hvolpur gera allt til að halda þeim á lífi en dugar það til? Og … hver í veröldinni er þessi Sturla?
Verðlaunahöfundurinn Gunnar Helgason skapar ævintýralega spennu með leiftrandi frásagnargleði og heillandi söguheimur hans sprettur fram í fjölmörgum mögnuðum myndum Sigmundar Breiðfjörð. Þetta er bók sem þú VERÐUR að lesa.

Karfan þín

Valmynd