Sólstjakar

Skáldverk

Sólstjakar

eftir Viktor Arnar Ingólfsson

2009 · 286 bls.

Veldu snið

2.065 kr.

Til á lager

Um bókina

Sólstjakar er sjöunda bók Viktors Arnar en margir þekkja bækur hans Flateyjargátu, Engin spor og Aftureldingu. Sú síðasttalda rataði á sjónvarpsskjái landsmanna í sakamálaseríunni Mannaveiðum.

Sólstjakar hefjast í Þýskalandi. Á skrifstofu íslenska sendiherrans í Berlín situr vafasamur viðskiptajöfur með iðrin úti og flugbeittan veiðihníf á kafi í maganum. Hver átti sökótt við þennan mann? Og hvernig komst hnífurinn inn um öflugt öryggishlið norrænu sendiráðanna? Íslensku lögreglumennirnir Birkir og Gunnar eru sendir á vettvang – en glæpurinn reynist eiga rætur sínar á Íslandi.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
ATH. Spurt og svarað um rafbækur.

Hljóðbókin er 10 klukkustundir og 20 mínútur að lengd. Vignir Rafn Valþórsson les.

Karfan þín

Valmynd