Morðið á Evelyn Gray – Lóla #1

Skáldverk

Morðið á Evelyn Gray – Lóla #1

eftir Arnaldur Indriðason

2026 · 325 bls.

Veldu snið

7.890 kr.

Til á lager

  • „… eins og maður sé kominn inn í æsispennandi James Bond-mynd.”

    Morgunblaðið · Steinþór Guðbjartsson

Um bókina

Þrítugasta bók Arnaldar Indriðasonar á jafn mörgum árum, hröð og hörkuspennandi glæpasaga þar sem amerískur kvikmyndaheimur mætir íslenskum veruleika í hringiðu óvæntra og skelfilegra atburða.

Ung lögreglukona, Lóla, er send frá Akureyri á Kópasker þegar fjölmennt kvikmyndatökulið frá Hollywood sem þar er að störfum kvartar undan heimafólki. Verið er að taka upp glæpaþáttaröð og heimsþekkt aðalleikkonan heldur hópnum í heljargreipum með dyntum sínum og kröfum. Í sömu andrá og norðlensk stórhríð skellur á og þorpið verður sambandslaust við umheiminn finnst leikkonan myrt með hrottalegum hætti. Lóla reynir að ná stjórn á aðstæðum með hjálp heimamanns sem eitt sinn var í lögreglunni og í myrkrinu hefst lífshættulegur eltingarleikur.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er 9 klukkustundir og 10 mínútur að lengd. Þórdís Björk Þorfinnsdóttir les.

Karfan þín

Valmynd