Viktor Arnar Ingólfsson

Forlagshöfundur

5 bækur

Viktor Arnar Ingólfsson

Viktor Arnar Ingólfsson er fæddur á Akureyri árið 1955. Hann lauk B.Sc.-prófi í byggingartæknifræði frá Tækniskóla Íslands (nú Háskólinn í Reykajvík) árið 1983 og hefur allt frá námslokum starfað hjá Vegagerðinni; frá  árinu1985 hefur hann séð um útgáfumál stofnunarinnar. Hann hefur enn fremur sótt námskeið í handritsgerð og stundað nám í almannatengslum, útgáfu, tölvugrafík o.fl. við George Washington-háskólann í Bandaríkjunum.

Fyrsta bók Viktors kom út árið 1978, glæpasagan Dauðasök, og tveimur árum seinna kom út önnur saga hans, Heitur snjór. Það var síðan ekki fyrr en árið 1998 sem Viktor sendi frá sér þriðju bókina, Engin spor, og á næstu árum fylgdu fleiri vinsælar glæpasögur. Eftir bókum hans hafa verið gerðar tvær sjónvarpsþáttaraðir; eftir Aftureldingu (útg. 2005) voru gerðir þættir sem nefnast Mannaveiðar og eftir Flateyjargátu (útg. 2002) voru nýlega gerðir samnefndir þættir. Þá hafa smásögur Viktors birst í bókum, blöðum og tímaritum.

Viktor hefur í tvígang verið tilnefndur til norrænu glæpasagnaverðlaunanna Glerlykilsins: árið 2001 fyrir Engin spor og 2004 fyrir Flateyjargátu. Bækur hans hafa verið þýddar og gefnar út á mörgum tungumálum.

Sía niðurstöður

Flokkar
Snið
Verð
0 kr.4.000 kr.+

Sýnir 1–5 af 5 bókum

Engin spor – Viktor Arnar Ingólfsson
  • Hljóðbók

Engin spor

Viktor Arnar Ingólfsson

1.290 kr.

Flateyjargáta – Viktor Arnar Ingólfsson
  • Innbundin
  • Kilja
  • Rafbók
  • Hljóðbók

Flateyjargáta

Viktor Arnar Ingólfsson

frá 990 kr.

Sólstjakar – Viktor Arnar Ingólfsson
  • Innbundin
  • Kilja
  • Rafbók
  • Hljóðbók

Sólstjakar

Viktor Arnar Ingólfsson

frá 990 kr.

Smáglæpir og morð – Eiríkur Brynjólfsson, Hjörvar Pétursson, Jón Karl Helgason, Ragnheiður Gestsdóttir og Viktor Arnar Ingólfsson
  • Mjúk spjöld

Smáglæpir og morð

Eiríkur Brynjólfsson, Hjörvar Pétursson, Jón Karl Helgason, Ragnheiður Gestsdóttir og Viktor Arnar Ingólfsson

720 kr.

Karfan þín

Valmynd