Þórarinn Eldjárn

Forlagshöfundur

59 bækur

Þórarinn Eldjárn

Þórarinn Eldjárn er fæddur í Reykjavík 1949. Hann stundaði nám í bókmenntum, heimspeki og íslensku við Háskóla Íslands og Háskólann í Lundi, en hann var búsettur í Svíþjóð um nokkrurra ára skeið.

Þórarinn á að baki langan og farsælan höfundarferil en fyrsta ljóðabók hans, Kvæði, kom út árið 1974. Hann vakti strax mikla athygli og hefur frá fyrstu tíð verið eitt ástsælasta skáld þjóðarinnar; bækur hans, sem skipta tugum, hafa jafnan notið mikillar hylli lesenda. Þórarinn er gríðarlega fjölhæfur og hefur sent frá sér verk í flestum greinum bókmennta: ljóðabækur í hefðbundnu formi og frjálsu, smásagnasöfn, skáldsögur, söguleg verk, leikrit og barnaljóð, auk þess sem hann hefur verið afkastamikill þýðandi og samið fjölda söngtexta.

Þórarinn hefur skýra sérstöðu meðal íslenskra skálda. Auk fjölhæfninnar er hann þekktastur fyrir glímu sína við hefðbundið ljóðform en einnig hefur vakið athygli hvernig hann vinnur úr íslenskum menningararfi með ísmeygilegri gamansemi sem tíðum reynist egghvöss þegar vel er að gáð. Hann er einstaklega orðhagur, jafnvígur á ljóð og laust mál og höfðar jafnt til barna sem fullorðinna.

Meðal viðurkenninga Þórarins fyrir ritstörf má nefna viðurkenningu Sænsku akademíunnar fyrir kynningu á sænskri menningu erlendis (2013), Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana fyrir barnabækurnar Ljóðpundara (2018), Árstíðirnar (2010) og Gælur, fælur og þvælur (2007) og fyrir ljóðabókina Hættur og mörk (2005), Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar fyrir bækurnar Óðfluga ((1992) og Halastjarna (1998) og svo mætti áfram telja. Þá hlaut hann Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar 1998 og var útnefndur borgarlistamaður Reykjavíkur árið 2008. Bók hans og Sigrúnar Eldjárn, Fuglaþrugl og naflakrafl, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2014 og þýðingar Þórarins á leikritum Shakespeares, Lé konungi, Jónsmessunæturdraumi og Hamlet, voru allar tilnefndar til Íslensku þýðingaverðlaunanna. Þá var skáldsaga hans, Brotahöfuð frá 1997, tilnefnd til írsku IMPAC-verðlaunanna, Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og Aristeion, evrópsku bókmenntaverðlaunanna.

Sía niðurstöður

Flokkar
Snið
Verð
0 kr.9.500 kr.+

Sýnir 25–48 af 59 bókum

Margsaga – Þórarinn Eldjárn
  • Rafbók

Margsaga

Þórarinn Eldjárn

990 kr.

Leir – Björn Ingólfsson, Björn Þórleifsson, Friðrik Steingrímsson, Hákon Aðalsteinsson, Hjálmar Freysteinsson, Jón Ingvar Jónsson, Óttar Einarsson, Ragnar Ingi Aðalsteinsson, Sigrún Á. Haraldsdóttir og Þórarinn Eldjárn
  • Innbundin

Leir

Björn Ingólfsson, Björn Þórleifsson, Friðrik Steingrímsson, Hákon Aðalsteinsson, Hjálmar Freysteinsson, Jón Ingvar Jónsson, Óttar Einarsson, Ragnar Ingi Aðalsteinsson, Sigrún Á. Haraldsdóttir og Þórarinn Eldjárn

2.590 kr.

Ása og Erla – Edda Heiðrún Bachman og Þórarinn Eldjárn
  • Mjúk spjöld

Ása og Erla

Edda Heiðrún Bachman og Þórarinn Eldjárn

990 kr.

Vaknaðu Sölvi – Edda Heiðrún Bachman og Þórarinn Eldjárn
  • Mjúk spjöld

Vaknaðu Sölvi

Edda Heiðrún Bachman og Þórarinn Eldjárn

990 kr.

Hávamál – Kristín Ragna Gunnarsdóttir og Þórarinn Eldjárn
  • Innbundin

Hávamál

Kristín Ragna Gunnarsdóttir og Þórarinn Eldjárn

3.390 kr.

Árstíðirnar – Sigrún Eldjárn og Þórarinn Eldjárn
  • Innbundin

Árstíðirnar

Sigrún Eldjárn og Þórarinn Eldjárn

2.875 kr.

Karnival dýranna – Kristín María Ingimarsdóttir og Þórarinn Eldjárn
  • Innbundin

Karnival dýranna

Kristín María Ingimarsdóttir og Þórarinn Eldjárn

3.310 kr.

Óðhalaringla – Sigrún Eldjárn og Þórarinn Eldjárn
  • Innbundin

Óðhalaringla

Sigrún Eldjárn og Þórarinn Eldjárn

3.100 kr.

Karfan þín

Valmynd