Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Vísnafýsn
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2010 | 83 | 1.025 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2010 | 83 | 1.025 kr. |
Um bókina
Bráðskemmtilegt vísnakver eftir Þórarin Eldjárn. Þórarinn yrkir laust og fast um smátt og stórt – stökur og smáljóð um ýmsar hliðar tilverunnar, ekki síst þær óvæntu.
Hér má finna speki og sprok um sérviskur og samviskur, mannlýsingar og upplýsingar.
Vísnafýsn er óvenjulegt kver með brýnt erindi við vandaða þjóð í hnipri.
3 umsagnir um Vísnafýsn
Bjarni Guðmarsson –
„… nýyrðasmíðin brýst fram hvað eftir annað, með tilheyrandi afneitun á upphafningu og fögnuði yfir spuna tungumálsins … Það mætti halda lengi áfram að skoða og skemmta sér yfir öruggum, fimlegum og umfram allt skemmtilegum tökum Þórarins á hinu einfalda formi ferskeytlunnar.“
Úlfhildur Dagsdóttir/bokmenntir.is
Bjarni Guðmarsson –
„Vísnafýsn er aðgengileg og skemmtileg ljóðabók sem allir ættu að hafa gaman af. Hún virðist einföld við fyrsta lestur en í gegnum hana liggur heill strengur og á bak við hverja stöku er heill heimur. Þetta er bók sem mallar heillengi í manni eftir á.“
Ingveldur Geirsdóttir/Morgunblaðið
Bjarni Guðmarsson –
„… hér eru á víða ferðinni paradoksar og afórismar, klassísk form sem falin eru í stöku, viskusteinar sem hafa á sér yfirbragð saklausrar hugsunar en eru dýpri, einhvers konar völur sem lesandinn getur velt í lófa hugans, spakmæli sett í hendingar.“
Páll Baldvin Baldvinsson/Fréttablaðið