Kristín Steinsdóttir

Forlagshöfundur

19 bækur

Kristín Steinsdóttir

Kristín Steinsdóttir er fædd á Seyðisfirði 1946 og ólst þar upp. Hún varð stúdent frá MA 1967 og tók kennarapróf frá Kennaraskólanum ári síðar. Um skeið bjó hún erlendis og lagði þá stund á dönskunám í Kaupmannahöfn og þýskunám í Göttingen. Árið 1981 lauk hún BA-prófi í dönsku og þýsku frá Háskóla Íslands.

Kristín fékkst um árabil við kennslu í grunn- og framhaldsskóla en hefur sinnt ritstörfum eingöngu frá árinu 1988. Hún hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin árið 1987 fyrir fyrstu bók sína, Franskbrauð með sultu, og skrifaði í kjölfarið fjölda barna- og unglingabóka, á þriðja tug alls. Árið 2003 fékk hún Norrænu barnabókaverðlaunin fyrir bókina Engill í Vesturbænum.

Samhliða farsælum ferli við barnabókaskrif samdi Kristín allmörg leikrit fyrir börn og fullorðna, flest í félagi við Iðunni systur sína. Þekktasta verkið er eflaust Síldin kemur og síldin fer sem var frumsýnt 1986.

Á seinni árum hefur Kristín einkum skrifað fyrir fullorðna og hafa skáldsögur hennar notið mikilla vinsælda. Hún skrifar lipran stíl og aðalpersónur í sögum hennar eru konur á ýmsum aldri sem oft þurfa að takast á við erfiðar aðstæður. Kristín hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir skáldsögurnar, var til dæmis tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir Á eigin vegum (útg. 2007) og hlaut Fjöruverðlaunin fyrir sömu bók. Sömuleiðis fékk hún Fjöruverðlaunin og Menningarverðlaun DV fyrir Ljósu (útg. 2010) sem er að líkindum vinsælasta skáldsaga hennar.

Bækur Kristínar hafa komið út á Norðurlöndunum, í Þýskalandi og víðar. Kristín sat lengi í stjórn Rithöfundasambands Íslands og var formaður sambandsins 2010–2014. Áður hafði hún gegnt formennsku Sambands íslenskra barna- og unglingabókahöfunda 1999–2003.

Sía niðurstöður

Hreinsa
Flokkar
Snið
Verð
0 kr.7.000 kr.+

Sýnir 1–19 af 19 bókum

Undir 7.000 kr.
Fallin spýta – Kristín Steinsdóttir
  • Rafbók
  • Hljóðbók

Fallin spýta

Kristín Steinsdóttir

frá 990 kr.

Á eigin vegum – Kristín Steinsdóttir
  • Kilja
  • Rafbók
  • Hljóðbók

Á eigin vegum

Kristín Steinsdóttir

frá 990 kr.

Ljósa – Kristín Steinsdóttir
  • Kilja
  • Rafbók
  • Hljóðbók

Ljósa

Kristín Steinsdóttir

frá 990 kr.

Ekki vera sár – Kristín Steinsdóttir
  • Innbundin
  • Rafbók
  • Hljóðbók

Ekki vera sár

Kristín Steinsdóttir

frá 990 kr.

Vonarlandið – Kristín Steinsdóttir
  • Innbundin
  • Rafbók

Vonarlandið

Kristín Steinsdóttir

frá 990 kr.

Bjarna-Dísa – Kristín Steinsdóttir
  • Innbundin
  • Rafbók
  • Hljóðbók

Bjarna-Dísa

Kristín Steinsdóttir

frá 990 kr.

Hetjur – Kristín Steinsdóttir
  • Innbundin
  • Kilja
  • Hljóðbók

Hetjur

Kristín Steinsdóttir

frá 1.090 kr.

Vítahringur – Halla Sólveig Þorgeirsdóttir og Kristín Steinsdóttir
  • Innbundin

Vítahringur

Halla Sólveig Þorgeirsdóttir og Kristín Steinsdóttir

990 kr.

Hver étur ísbirni – Halla Sólveig Þorgeirsdóttir og Kristín Steinsdóttir
  • Mjúk spjöld

Hver étur ísbirni

Halla Sólveig Þorgeirsdóttir og Kristín Steinsdóttir

990 kr.

Auga Óðins – Anna Cynthia Leplar, Brian Pilkington, Gunnhildur Hrólfsdóttir, Kristín Steinsdóttir og Sigrún Eldjárn
  • Mjúk spjöld

Auga Óðins

Anna Cynthia Leplar, Brian Pilkington, Gunnhildur Hrólfsdóttir, Kristín Steinsdóttir og Sigrún Eldjárn

1.190 kr.

Karfan þín

Valmynd