Bjarna-Dísa
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2012 | 158 | 2.995 kr. | ||
Rafbók | 2012 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2012 | 158 | 2.995 kr. | ||
Rafbók | 2012 | 990 kr. |
Um bókina
Þórdís Þorgeirsdóttir fæddist í lágum torfkofa austur á landi á 18. öld, öld hjátrúar og hindurvitna. Afdrif hennar urðu efni í grimmilega þjóðsögu. En hver var hún, stúlkan sem sagan nefnir Bjarna-Dísu?
Hér fær Dísa sjálf orðið, bláfátæk en lífsglöð stúlka sem stritar frá barnæsku til að hafa í sig og á. Daginn sem hún heldur upp á heiði ásamt Bjarna bróður sínum er vonskuveður en skyldan kallar, þau eru vinnuhjú og þurfa að standa sig. Á ískaldri heiðinni bíða Þeirra átök við öfl náttúru og myrkurs …
Kristín Steinsdóttir hlaut einróma lof fyrir seinustu skáldsögu sína, Ljósu, sem hefur notið geysimikilla vinsælda. Hér segir Kristín sögu annarrar konu úr fortíðinni sem ekki hefur átt sér málsvara fyrr.
Nálgast má kennsluleiðbeiningar með bókinni á kennarasvæði Forlagsins.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 3 klukkustundir og 48 mínútur að lengd. Höfundur les.
5 umsagnir um Bjarna-Dísa
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Skemmtileg lesning, ég las hana í einum rykk … og hvernig hún setur sig í spor alþýðunnar, mér finnst hún fanga það vel.“
Egill Helgason / Kiljan
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„… áhrifamikil saga um grimm örlög kvenna og fátæklinga í miskunnarlausu landi sem alið hefur af sér harðneskjulega herra. Texti Kristínar er lipurlega og fallega skrifaður. Höfundi tekst að draga upp sterkar myndir bæði af aðalpersónum sínum og ýmsum aukapersónum. … Að lokum er ekki hægt annað en að minnast á kápu bókarinnar sem er sérlega falleg og hugvitsamlega hönnuð. Þar getur að líta prófíl af ungri konu sem teiknuð hefur verið ofan í landakort af sögusviðinu.“
Silja Björk Huldudóttir / Morgunblaðið
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Í meðförum Kristínar verður saga þessarar ungu konu dæmisaga um hið eyðandi afl hjátrúar og fordóma … Saga Bjarna-Dísu er hjartnæm og heldur lesanda til enda …“
Ásdís Sigmundsdóttir / Víðsjá
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„… haganlega smíðað, vandað og vel á haldið … eitt af því skemmtilegasta við bókina fannst mér lýsingin á hjátrú þessa tíma og þeirri stöðugu ásókn drauga sem Þórdís verður fyrir þar sem hún liggur í fönninni.“
Úlfhildur Dagsdóttir / bokmenntir.is
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Ofsalega fallega skrifað … svo mikil hlýja og væntumþykja …“
Friðrika Benónýsdóttir / Kiljan