Sólin sest að morgni
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2017 | 990 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.290 kr. | Setja í körfu |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2017 | 990 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.290 kr. | Setja í körfu |
Um bókina
Sólin sest að morgni (2004) er fyrsta skáldsaga Kristínar Steinsdóttur fyrir fullorðna. Hér segir frá skapmikilli stúlku sem vex upp í skjóli hárra fjalla. Að henni standa sterkar konur, fyrirmyndir í tilverunni, en líka karlar sem eru sannfæringu sinni trúir og svíkja ekki lit. Yfir leikjum og kátínu æskunnar hvílir skuggi sem erfitt er að horfast í augu við.
Kristín Steinsdóttir sýnir hér á sér nýja hlið. Efniviðinn sækir hún í bernskuna og úr verður margræð frásögn þar sem undir krauma sterkar tilfinningar. Sólin sest að morgni er heillandi saga sem snertir lesandann djúpt.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 1 klukkustund og 36 mínútur að lengd. Höfundur les.
Umsagnir
Engar umsagnir komnar