
Ríkisfang: Ekkert
Haustið 2008 flúðu átta fjölskyldur skelfilegar aðstæður í Al Waleed-flóttamannabúðunum og fengu hæli á Akranesi. Allt voru þetta einstæðar mæður með börn, af palestínsku bergi brotnar en höfðu alið allan sinn aldur í Írak. En hvað rak þær á flótta? Sigríður Víðis Jónsdóttir kynntist konunum og segir sögu þeirra í þessari merkilegu bók. Frásögnin er sönn,…















