Bókin Hægur dauði eftir danska tvíeykið Agnete Friis og Lene Kaaberbøl fær fimm stjörnur í dómi Páls Baldvins Baldvinssonar í Fréttatímanum. Páll Baldvin var hrifinn af fyrstu bók höfundanna, Barnið í ferðatöskunni og gaf þeirri bók fjórar stjörnur á sínum tíma. Þessi önnur bók um Ninu Borg nær greinilega að toppa þá fyrstu með sitt fulla hús af stigum og Páll Baldvin hrósar samvinnu höfundanna: „Kaaberbøl er afbragðs fléttusmiður og þeim Friis tekst, rétt eins og í fyrsta hluta þessa þríleiks, að halda lesandanum vel við efnið þótt atburðir sögunnar fari víða […]“
Aðdáendur dönsku krimmakvennanna geta verið glaðir. Hér er glæný bók sem hægt er að lesa upp til agna. Svo er bara að bíða spenntur eftir þeirri þriðju!





