Willard og keilubikararnir hans – afbrigðileg ráðgáta

Skáldverk

Willard og keilubikararnir hans – afbrigðileg ráðgáta

eftir Richard Brautigan

2021 · 168 bls.

Veldu snið

3.490 kr.

Til á lager

Um bókina

Sögusvið þessarar bráðfyndnu skáldsögu er íbúðarhús í San Francisco. Þar búa John og Patricia á neðri hæðinni. Í einu herbergi er pappamassafuglinn Willard ásamt fjölmörgum keilubikurum sem John fann í yfirgefnum bíl. Á efri hæðinni býr parið Bob og Constance. Þau eiga við djúpstæða sambandserfiðleika að stríða sem versnuðu um allan helming við óheppilegt smit. Svo eru það Logan-bræðurnir sem þvælst hafa um Bandaríkin þver og endilöng í þrjú ár í leit að stolnu keilubikurunum sínum og eru orðnir að forhertum glæpamönnum.

Richard Brautigan fer á kostum í þessari dýrlegu sögu um fjörugt ástalíf, forngrískan skáldskap, dularfullan glæp, brostnar vonir og óvænt endalok.

Karfan þín

Valmynd