Vonarstjarna
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2016 | 343 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2016 | 490 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2016 | 343 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2016 | 490 kr. |
Um bókina
Hope nýtur þess að hugsa um gistihús Montgomery-fjölskyldunnar þó að það sé lítið í samanburði við lúxushótelið sem hún stýrði áður. En ástarlífið er dauflegt, og þótt stundum neisti á milli þeirra Ryders Montgomery eftir kossinn á nýársnótt getur ekkert samband orðið úr því – til þess er hann allt of hrjúfur og ómannblendinn og hún of ráðrík og þver. Heitustu tilfinningarnar sem krauma á gistihúsinu er þrá húsdraugsins Lizzy eftir sínum löngu horfna elskhuga sem reynist þrautin þyngri að finna.
Vonarstjarna er þriðja bókin í Boonsboro-þríleiknum, áður komu Biðlund um elsta Montgomery-bróðurinn og ekkjuna ungu, og Einhvern daginn þar sem fylgst var með miðbróðurnum og æskuástinni hans.
Nora Rober ts er vinsælasti ástarsagnahöfundur Bandaríkjanna og allar bækur hennar frá 1999 hafa komist á metsölulista New York Times. Þær hafa verið gefnar út í tugum landa og selst í yfir 500 milljónum eintaka.
Halla Sverrisdóttir þýddi.
„Eftirlætishöfundur bandarísku þjóðarinnar.“
The New Yorker
„Þegar kemur að sannri ást kemst enginn með tærnar þar sem Nora Roberts hefur hælana.“
Booklist