Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Vesturfarasögurnar
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2015 | 654 | 3.390 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2015 | 654 | 3.390 kr. |
Um bókina
Vesturfarasögur Böðvars Guðmundssonar hafa notið fádæma vinsælda og eru með rómuðustu íslensku sagnaflokkum síðari ára. Í bókunum Híbýli vindanna og Lífsins tré rekur Böðvar fjölskyldusögu vesturfarans Ólafs fíólíns og veitir lesendum einstaka innsýn í líf Íslendinga sem fluttust til Vesturheims á seinni hluta 19. aldar; störf þeirra og kjör, vonir og þrár. Persónurnar eru margar og litríkar, og saga þeirra er skrifuð af næmum skilningi og fölskvalausri samúð. Að baki frásögunum liggur umfangsmikil heimildavinna og Íslandssagan lifnar við í þessu magnaða verki.
Báðar bækurnar voru tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og hlaut Lífsins tré verðlaunin árið 1996.
2 umsagnir um Vesturfarasögurnar
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Böðvar hefur með bókunum tveimur skapað skáldverk sem tæpast á sinn líka í íslenskum bókmenntum. Söguþráðurinn er fimlega ofinn, aragrúi eftirminnilegra persóna stígur fram á sviðið, stíllinn er þróttmikill og orðfærið auðugt.“
IÞ / Alþýðublaðið
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„… eitt magnaðasta og minnisstæðasta skáldverk sem út hefur komið á íslensku langa lengi.“
FB / DV