Verjandinn
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu | |
Innbundin | 2016 | 347 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2016 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu | |
Innbundin | 2016 | 347 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2016 | 990 kr. |
Um bókina
Hann svaf illa um nóttina en það gerði hann hvort sem er þegar stór málflutningur var fram undan. Taugarnar þöndust smám saman, komu í veg fyrir góðan svefn en héldu honum við efnið þegar á hólminn var komið. Svefnleysið hafði aldrei komið að sök.
Stefán Bjarnason hæstaréttarlögmaður á við ramman reip að draga í heiftúðugu forræðismáli. Íslensk móðir hefur flúið með unga dóttur frá Bandaríkjunum til Íslands í trássi við niðurstöðu dómstóla. Harðsnúnir „sérfræðingar“ eru ráðnir á vegum föðurins til að ná í barnið. Þeir vingast við móðurina, beita alls kyns blekkingum og brögðum, og reyna að nema barnið á brott í skjóli nætur. En þegar sú aðgerð misheppnast kemur til kasta verjandans. Þó að Stefán sé vingull í einkalífi er hann orðsnar, lipur og öruggur í starfi. Og smátt og smátt afhjúpast sú fortíð sem leitt hefur til þeirra dramatísku atburða sem skekja líf allra sem hlut eiga að máli.
Verjandinn er hörkuspennandi skáldsaga, sakamáladrama um ástir, vináttu, framhjáhald, misnotkun og miskunnarlaus morð, krydduð gamansemi og leiftrandi háði.
Óskar Magnússon er lögfræðingur að mennt og hæstaréttarlögmaður. Hann rak eigin lögmannsstofu og var lengi forstjóri fyrirtækja og útgefandi fjölmiðla. Hann hefur sent frá sér tvö smásagnasöfn við góðar undirtektir, Borðaði ég kvöldmat í gær? (2006) og Ég sé ekkert svona gleraugnalaus (2010). Fyrsta skáldsaga Óskars, Látið síga piltar (2013), hlaut afbragðsgóðar viðtökur bæði lesenda og gagnrýnenda.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 10 klukkustundir og 35 mínútur að lengd. Friðrik Erlingsson les.
4 umsagnir um Verjandinn
Árni Þór –
„Spennandi skáldsaga sem erfitt er að standa upp frá fyrr en sagan er öll. Persónurnar eru trúverðugar og sumar alveg lygilega líkar þjóðþekktum mönnum. Þetta er fyndin, skemmtileg og spennandi bók … Þegar lesturinn er hafinn er erfitt að leggja bókina frá sér en þannig á góð bók að vera.“
Vilhjálmur A. Kjartansson / Morgunblaðið
Árni Þór –
„Stíllinn hnyttinn og háðskur. Ég skemmti mér konunglega við lesturinn. Mæli eindregið með henni.“
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
Árni Þór –
„Verjandinn er skotheldur krimmi, hörkuspennandi en Óskari tekst að sauma inní svo átakanlegar aðstæður að þær kalla fram skellihlátur lesandans. Átakanlega fyndinn og spennandi krimmi. Já. Þetta er nýtt.“
Jakob Bjarnar Grétarsson / Vísir.is
Árni Þór –
„Sakamáladrama í líki spennusögu. Ískrandi háð og hárfínt skop krydda réttinn.“
Páll Baldvin Baldvinsson