Vegurinn heim lengist með hverjum morgni

Skáldverk

Vegurinn heim lengist með hverjum morgni

eftir Fredrik Backman

2018 · 70 bls.

Veldu snið

990 kr.

Rafbók afhent strax eftir greiðslu

Um bókina

„Ég er alltaf að lesa bók sem í vantar eina síðuna. Og það er alltaf mikilvægasta síðan.“

Nói og afi hans sitja á bekk og tala saman. Þeir geta rætt um allar lífsins gátur, bæði þær stóru og smáu. Heimur afans er að breytast, hann verður sífellt óreiðukenndari og það verður honum æ erfiðara að kalla fram minningarnar. Það rennur upp fyrir þeim að brátt þurfi þeir að kveðjast.

Fredrik Backman er einn fremsti rithöfundur Norðurlanda. Bækur hans hafa farið sigurför um heiminn og sitja víðsvegar efst á metsölulistum. Hér kemur höfundurinn að lesandanum úr óvæntri átt í lítilli en áhrifamikilli bók.

Karfan þín

Valmynd