Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Ungfrú fótbolti
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2019 | 990 kr. | |||
Innbundin | 2019 | 293 | 4.290 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2019 | 990 kr. | |||
Innbundin | 2019 | 293 | 4.290 kr. |
Um bókina
Vinkonurnar Gerða og Ninna eru alveg fótboltaóðar. Götuboltaliðið æfir þrotlaust og stelpurnar eru stórhuga, þær vilja keppa á alvöru velli eins og strákarnir. En þá þarf að taka slaginn við samfélag sem hefur mjög skýrar hugmyndir um hvað 13 ára stelpur mega gera.
Ungfrú fótbolti er bráðskemmtileg baráttusaga sem gerist innan um hálfbyggðu húsin í Breiðholtinu 1980, sumarið sem Vigdís Finnbogadóttir skoraði hefðirnar á hólm og bauð sig fram til forseta.
Brynhildur Þórarinsdóttir hefur meðal annars hlotið Norrænu barnabókaverðlaunin fyrir endursagnir sínar á Íslendingasögum og Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir Leyndardóm ljónsins. Hún ólst upp í Breiðholtinu.
2 umsagnir um Ungfrú fótbolti
gudnord –
„Ungfrú fótbolti er dæmi um íslenskar barna- og unglingabókmenntir eins og þær gerast bestar.“
Erla María Markúsdóttir / Morgunblaðið
Arnar –
„Ungfrú fótbolti er fyndin og skemmtileg bók með sterkum boðskap og alvarlegum undirtóni en líka sagnfræðileg heimild um heim sem hefur breyst svo mikið en samt ekki nóg.“
Brynhildur Björnsdóttir / Fréttablaðið