Tólf þulur

Barna- og unglingabækur

Tólf þulur

eftir Þórarinn Eldjárn

2026 · 30 bls.

Veldu snið

7.690 kr.

Til á lager

Um bókina

Hér er þulið frá morgni til kvölds um liti og tóna, fugla og veður, tröll og drauga, berjamó og stjörnuhimin og ýmislegt fleira.

 

Þuluþökk

Höfundum þeim sem þuldu

skal þakkað, svo sem Huldu

og öðrum af þeim stóru 

sem á undan fóru

ekki síst Theódóru

og einnig Erlu

ortu þær marga perlu.

Þakkað skal allt sem Jón Árnason gaf

og Ólafur Dav.

Loks skal lof síst spara

hinum léttstíga nafnlausa skara

ættmæðra og ættfeðra vorra

allar götur frá Snorra.

Karfan þín

Valmynd