Um bókina
Sænsk fjölskylda er myrt með gasi á heimili sínu á spænskri sólarströnd. Þvert gegn vilja sínum er Annika Bengtzon send til Spánar til að fylgjast með gangi rannsóknar á málinu sem leiðir stöðugt dularfyllri hluti í ljós. Undir brennheitri sól flækist Annika í örlagaríka og æsispennandi atburðarás þar sem koma við sögu eiturlyf, peningaþvætti og hefnd sem á rætur að rekja til löngu liðinna atvika.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 14 klukkustundir og 28 mínútur að lengd. Birna Pétursdóttir les.













