Það kemur SAGA út úr mér!

Barna- og unglingabækur

Það kemur SAGA út úr mér!

eftir Herdís Egilsdóttir

2016 · 88 bls.

Veldu snið

6.490 kr.

Til á lager

Um bókina

Það kemur SAGA út úr mér! er kennsluhandbók ætluð öllum sem vilja stuðla að læsi barna.

Hljóðlestraraðferðin er þrautreynd. Ísak Jónsson skólastjóri innleiddi hana hér á landi árið 1926. Greinargóðar kennsluleiðbeiningar og mikill og traustur efniviður til kennslu lesturs er vel fram settur í bókinni. Einnig er leikið með hljóðin og kennt að draga til stafs.

Í bókinni eru: Kennsluleiðbeiningar, hljóðsögur, teikningar eftir höfundinn sem tengja saman stafi og hljóð, spurningar með hverri hljóðsögu og stafavísur. Með bókinni fylgja 33 stafapjöld í A5 stærð til að hengja á vegg, jafnóðum og stafirnir hafa verið kenndir.

Einnig er aðgangur að vefsíðu með myndunum o.fl. til að varpa á skjá hvort sem er heima við eða í skólastofunni.

Karfan þín

Valmynd