Sundkýrin Sæunn

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2020 41 3.490 kr.
spinner
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2020 41 3.490 kr.
spinner

Um bókina

Getur verið að saga af kú sem strýkur úr sláturhúsinu, hleypur í átt að sjónum og syndir yfir heilan fjörð til þess að eygja framhaldslíf, sé kannski aðeins of mikið fyrir barnabók? Ekki endilega og hvað þá ef sagan er sönn?! Það er nefnilega oft sagt að raunveruleikinn sé ótrúlegri en hvaða skáldskapur.

Sagan af kúnni sem bjó á bóndabæ í Önundarfirði er nefnilega dagsönn. Þegar bóndinn gekk brúnaþungur einn dag um fjósið og valdi nokkrar af hans kúm til að senda í sláturhús, þá varð söguhetjan okkar ein af þeim sem teymdar voru upp á vörubíl og lögðu af stað í sláturhúsið á Flateyri. Hún var þó ekki alveg á því að þetta ætti að enda svona. Nú var að hrökkva eða stökkva!

Þessari stórmerkilegu og ótrúlegu sögu af sundkúnni Sæunni hefur nú verið komið fyrir á bók. Söguna skráir Eyþór Jóvinsson bóksali á Flateyri og bókina prýðir fjöldi afar glæsilegra litmynda eftir Freydísi Kristjánsdóttur sem gæðir söguna lífi.

Tengdar bækur

2.190 kr.
3.390 kr.
3.990 kr.
3.490 kr.
990 kr.
1.790 kr.
14.390 kr.

INNskráning

Nýskráning