Snorri á Fossum
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2013 | 1.695 kr. | |||
Rafbók | 2019 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2013 | 1.695 kr. | |||
Rafbók | 2019 | 990 kr. |
Um bókina
Snorri á Fossum er að góðu kunnur. Borgfirðingar þekkja hann sem dugandi bónda, hestamann, gleðimann og leikara, en á undanförnum árum hefur hann orðið landsþekktur söngvari og „hjálpari“. Með því er átt við hæfileika Snorra til að koma öðrum til aðstoðar með ýmsum hætti. Hann getur fundið vatn í jörðu með spáteinum, hann sér óorðna hluti og veitir hjálp í veikindum og annars konar erfiðleikum með stuðningi frá öðrum heimi.
Snorri Hjálmarsson er upprunninn í Aðalvík á Hornströndum en fluttist í Andakílinn eftir upp vöxt og skólagöngu í Reykjavík og á Hvanneyri. Hann hreppti kóngsdótturina, Sigríði Guðjónsdóttur á SyðstuFossum, hálft ríkið og síðan allt, eins og í sönnu ævintýri, og hefur ríkt þar síðan.
Hinn góðkunni sagnamaður, Bragi Þórðarson, segir í þessari bók sögu Snorra sem er allt í senn – fróðleg, umhugsunarverð og bráðskemmtileg. Hér eru á ferðinni æviminningar manns með einstaka hæfileika og jákvæða lífssýn, manns sem gefur lífinu lit og er ávallt reiðubúinn að rétta náunganum hjálparhönd.