Snákurinn mikli
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2023 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu | |
Kilja | 2022 | 283 | 3.690 kr. | ||
Rafbók | 2022 | 2.990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2023 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu | |
Kilja | 2022 | 283 | 3.690 kr. | ||
Rafbók | 2022 | 2.990 kr. |
Um bókina
„Þegar Mathilde á í hlut fer hver einasta kúla þangað sem henni er ætlað að fara, allt er snyrtilega gert og vandræðalaust. Þetta kvöld er undantekning frá þeirri reglu … Hún hefði getað skotið manninn úr meiri fjarlægð, ekki eins hrottalega, skotið aðeins einni kúlu, að sjálfsögðu.”
Mathilde er miðaldra andspyrnuhetja, ekkja, móðir og hundavinur. Þessi elskulega kona sem er hvers manns hugljúfi á sér hins vegar aðra og skuggalegri hlið sem aðeins örfáir vita um …
Metsölu- og verðlaunahöfundurinn Pierre Lemaitre fer á kostum í þessari bráðskemmtilegu spennusögu sem hann skrifaði í upphafi ferils síns og er bókin jafnframt sú síðasta á ferli hans sem spennusagnahöfundar. Höfundareinkenni hans njóta sín hér að fullu: snörp og hröð samtöl, magnaðar mannlýsingar, úthugsuð, óvænt og hörkuspennandi atburðarás. Lemaitre er einn vinsælasti spennusagnahöfundur Frakka og margverðlaunaður fyrir Verhoeven-þríleik sinn sem kom út á íslensku á árunum 2014–2017.
Friðrik Rafnsson íslenskaði.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
ATH. Spurt og svarað um rafbækur.
Hljóðbókin er 8 klukkustundir og 48 mínútur að lengd. Rósa Guðný Þórsdóttir les.
Hér má hlusta á brot úr hljóðbókinni:
1 umsögn um Snákurinn mikli
embla –
„Pierre Lemaitre skilur við glæpasöguformið eins og búast má við af rithöfundi hoknum af reynslu.“
Steinþór Guðbjartsson / Morgunblaðið