Um bókina
Tilvera Daggar er skyndilega komin á hvolf. Vinkonur hennar hafa snúið við henni baki, mamma hennar er komin með nýjan kærasta og nú stendur til að þær flytji ásamt honum og dóttur hans, Brynju, í gamalt hús í miðbænum. Þótt þær Brynja séu jafngamlar og báðar í Kvennó þekkjast þær ekkert – og Dögg finnst öruggast að halda því þannig.
Þau hafa ekki búið lengi í nýju íbúðinni þegar stelpurnar verða sannfærðar um að þar sé reimt. Foreldrarnir trúa þeim ekki svo þær ákveða að taka málin í sínar hendur, komast að því hver draugurinn er og hvað hann vill þeim. Þær kafa ofan í sögu hússins og eru brátt komnar á blóði drifna slóð látinna unglingsstúlkna. Ef þeim tekst ekki að leysa ráðgátuna gætu þær orðið næstar.













