Skólaslit #2: Dauð viðvörun
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2023 | 219 | 5.490 kr. | ||
Rafbók | 2023 | - | 2.990 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2023 | App | 2.690 kr. | Setja í körfu |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2023 | 219 | 5.490 kr. | ||
Rafbók | 2023 | - | 2.990 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2023 | App | 2.690 kr. | Setja í körfu |
Um bókina
Ár er liðið frá því að hópur hugrakkra krakka gjörsigraði myrkraverur sem höfðu lagt undir sig stóran skóla á Reykjanesi. Allt endaði vel og allir gátu andað léttar. Eða hvað? Þegar unglingadeild skólans skellir sér í ferðalag út á land kemur fljótlega í ljós að enginn er óhultur. Allra síst krakkarnir í öftustu rútunni …
Skólaslit 2: Dauð viðvörun eftir Ævar Þór Benediktsson er sjálfstætt framhald metsölubókarinnar Skólaslita. Sagan birtist fyrst sem ógnvekjandi hrekkjavökudagatal en kemur nú út á bók – sem lesendur munu tæta í sig. Ari H.G. Yates teiknar hrollvekjandi myndir.
Skólaslit voru tilnefnd til Bókaverðlauna barnanna auk þess sem verkefnið hefur hlotið fjölda viðurkenninga.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 3 klukkustundir og 58 mínútur að lengd. Höfundur les.
3 umsagnir um Skólaslit #2: Dauð viðvörun
embla –
„Skólaslit 2 – Dauð viðvörun gefur fyrri bók ekkert eftir. Hún er spennandi, ógeðsleg og hrollvekjandi. Krakkar vilja hrollvekjur. Gefið þeim hrollvekjur.“
Katrín Lilja / Lestrarklefinn
embla –
„Hún er soldið fyndin. Soldið viðbjóðsleg og ég mæli með því að allir krakkar lesi þessa bók! Og ég vil endilega að Ævar Þór skrifi fleiri Skólaslit bækur, sko milljón ef hann getur!“
Úrsúla B. Bragadóttir, 9 ára / Heimildin
embla –
„Ævar gengur skemmtilega langt í hryllingnum og það er nóg af blóði, gori, slími og springandi holdi í bókinni. Ari H. G. Yates slær hárréttan tón í myndum sínum sem undirstrika húmorinn í frásögninni og eru hvorki of hrollvekjandi né of barnalegar.“
Salka Guðmundsdóttir / Heimildin