Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Skóladraugurinn
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2016 | 173 | 4.190 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2016 | 173 | 4.190 kr. |
Um bókina
Fyrsta daginn í nýja skólanum heyrir Gunnvör söguna um skóladrauginn – gömlu söguna sem allir krakkarnir kunna utan að og eru löngu hættir að taka mark á. En Gunnvör hlustar. Það gæti nefnilega komið sér vel fyrir hana ef draugar eru til.
Skóladraugurinn er spennandi saga um dularfulla atburði sem bar sigur úr býtum í samkeppninni um Íslensku barnabókaverðlaunin 2016. Inga Mekkin Beck er með próf í ritlist frá Háskóla Íslands. Skóladraugurinn er fyrsta bók hennar.
3 umsagnir um Skóladraugurinn
Árni Þór –
„… erfitt er að leggja hana frá sér og er í heildina vel skrifuð … Í heildina er bókin þó gott byrjendaverk og vonandi hvatning til Ingu um að skrifa meira. Sagan er fengur fyrir ungt fólk sem vill gleyma sér um stund, týnast inn í spennandi sögu í kunnuglegu umhverfi – hver veit hvað leynist í gömlum geymslum skólans?“
Þórdís Edda Jóhannesdóttir / Hugrás
Árni Þór –
„Þrátt fyrir að sagan fjalli um alvarleg mál og erfiðar tilfinningar er hún ekki niðurdrepandi heldur fremur grípandi, lesandinn fær samúð með Gunnvöru og vill að henni gangi vel að leysa úr öllu því sem hún stendur frammi fyrir … sagan er mjög sannfærandi, einlæg og trúverðug lýsing á lífinu eftir missi, viðbrögðum fjölskyldunnar og togstreitunni sem getur myndast þegar lífið heldur áfram þrátt fyrir allt.“
María Bjarkadóttir / Bókmenntir.is
Árni Þór –
„Sagan er spennandi og ljúfsár, tekur á mörgu verðugu og hefur góðan boðskap.“
Guðríður Haraldsdóttir / Vikan