Skálds saga: 74 kaflar úr höfundarlífinu

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2024 244 4.690 kr.
spinner
Rafbók 2024 - 2.990 kr.
spinner

Skálds saga: 74 kaflar úr höfundarlífinu

2.990 kr.4.690 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2024 244 4.690 kr.
spinner
Rafbók 2024 - 2.990 kr.
spinner

Um bókina

Hvernig er að vera rithöfundur? Hvaðan kemur innblásturinn og þörfin til að skrifa? Hvernig komast hugmyndirnar síðan á blað – og bók?

Verðlaunahöfundurinn Steinunn Sigurðardóttir hefur á löngum ferli samið fjölda skáldsagna, ort ófá ljóð og skrifað vinsælar sannsögur, en hér er hún á nýjum slóðum og segir frá sjálfri sér, viðhorfum sínum, aðferðum og aðstöðu við skriftir.

Hún sýnir inn í vinnuherbergin og hugarfylgsnin, flakkar um landið og heiminn og dregur upp myndir af harðri glímu sinni við form og stíl, persónur og sögusvið, ytri aðstæður og innri hindranir. Um leið lýsir hún umhverfi, lífsreynslu og atvikum sem hafa orðið henni kveikjur að skáldskap og hvatning til að halda út dagana og árin sem það tekur að komast á leiðarenda, ljúka verki – sem ekki er alltaf sjálfgefið að takist.

Allt þetta kryddar Steinunn með sínum einstaka húmor, þekkingu og ærslafullum stíl sem enginn leikur eftir, og býður lesendum til ógleymanlegrar veislu. Fyrir seinustu skáldsögu sína, Ból, fékk hún Íslensku bókmenntaverðlaunin.

Umfjöllun / Lestur úr bókinni

2 umsagnir um Skálds saga: 74 kaflar úr höfundarlífinu

  1. Fanney Benjaminsdottir


    „Þetta er skemmtileg bók, skrifuð af ástríðu og stokkið úr einu í annað eins og efnið býður upp á, stíllinn hraður í samræmi við það, víða hnittinn…”

    Sölvi Sveinsson / Morgunblaðið

  2. Fanney Benjaminsdottir

    „Undirrituð minnist þess ekki að hafa fyrr fengið svo ýtarlega sýn inn í hugarheim skrifandi manneskju og sköpunarferlið að baki heilstæðri bók. Steinunn skrifar af mikilli lipurð og tekst að skapa mjög skemmtilegt andrúmsloft í frásögnum sínum.“

    Steingerður Steinarsdóttir / Lifðu núna

Skrifa umsögn

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

1 of 5 stars 2 of 5 stars 3 of 5 stars 4 of 5 stars 5 of 5 stars

Tengdar bækur

3.690 kr.4.690 kr.
Sólskinshestur
2.990 kr.3.490 kr.
1.990 kr.3.990 kr.
4.090 kr.
4.290 kr.
1.790 kr.
1.790 kr.