Skaði
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2021 | 271 | 2.990 kr. | ||
Kilja | 2022 | 271 | 2.990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2021 | 271 | 2.990 kr. | ||
Kilja | 2022 | 271 | 2.990 kr. |
Um bókina
Diljá öskraði og barðist um. Hjartað hamaðist í brjósti hennar og hún náði ekki andanum. Hún opnaði augun og og horfði óttaslegin í kringum sig. Sá ekkert en heyrði kyrrðina. Hægt og bítandi seig raunveruleikinn inn í vitund hennar.
Rannsóknarlögreglumaðurinn Guðgeir og teymi hans er kallað að tjaldsvæðinu í Herjólfsdal eftir að ljóst er að þar hafa átt sér stað voveiflegir atburðir. Skemmtiferð vinahjóna virðist hafa farið á annan veg en til stóð og ljóst er að margt býr undir yfirborði og ásjónu fólks. Rannsókn lögreglunnar teygir anga sína víða, allt frá eldfjallaeyjunni til frumskóga Mið-Ameríku.
Skaði er hörkuspennandi saga sem talar beint inn í samtímann. Sólveig hlaut Blóðdropann, verðlaun fyrir bestu íslensku glæpasöguna, fyrir bók sína Fjötra.
Það sem við höfum heyrt er satt. Sólveig Pálsdóttir er með þetta!
– Financial Times
Sólveig Pálsdóttir er meistari í að skapa andrúmsloft og draga upp sviðsmyndir. Fjötrar sýna líka snilldartök höfundarins á persónusköpun og góðum fléttum.
– West Words Reviews