Silfurlykillinn
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2018 | 225 | 4.290 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2023 | App | 1.490 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2022 | - | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2018 | 225 | 4.290 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2023 | App | 1.490 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2022 | - | 990 kr. |
Um bókina
Sumarliði og Sóldís eru nýflutt með pabba sínum í skrítið og skemmtilegt hús sem heitir Strætó númer sjö. Pabbi fullyrðir að einu sinni hafi það ekið um götur bæjarins. Pabbi segir svo margt furðulegt um lífið í gamla daga þegar allir áttu síma og bækur voru ennþá til – löngu löngu áður en mamma hvarf.
Silfurlykillinn er spennandi saga um ráðagóð systkini, dularfulla stelpu í leit að einhverju mjög mikilvægu og ferðalag sem enginn veit hvar endar.
Sigrún Eldjárn hefur skrifað fjölda bóka fyrir börn og myndskreytt ennþá fleiri. Hér koma nýjar persónur úr smiðju hennar sem leiða lesendur á ókunnar slóðir framtíðarinnar.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
ATH. Spurt og svarað um rafbækur.
Hljóðbókin er 3 klukkustundir og 9 mínútur að lengd. Berglind Alda Ástþórsdóttir les.
3 umsagnir um Silfurlykillinn
Arnar Tómas –
„Einstaklega falleg bók með spennandi og léttu yfirbragði en áhugaverðum og þyngri undirtóni. Sigrún Eldjárn í fantaformi.“
Brynhildur Björnsdóttir / Fréttablaðið
Arnar Tómas –
„Nauðsyn bóka og lesturs sem uppsprettu fróðleiks og brúar milli framtíðar og fortíðar kemur vel fram í sögunni. Silfurlykillinn talar vel inn í samtímann og er bók sem börn jafnt sem fullorðnir hafa gagn og gaman af að lesa.“
Guðrún Erlingsdóttir / Morgunblaðið
Arnar Tómas –
„Bókin er heldur róleg framan af, en heldur lesandanum ágætlega við efnið og fyrir vikið er hann verðlaunaður með hörkuspennandi lokaköflum.“
Katrín Lilja / Lestrarklefinn