Reimleikar í Reykjavík
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2013 | 120 | 3.100 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2013 | 120 | 3.100 kr. |
Um bókina
Veistu að á Alþingi er háaloft sem stendur autt fyrir utan eina möru sem sogar til sín hamingjuna? Vissirðu að í Tjörninni er útburður sem á síðkvöldum kjagar að leiði móður sinnar í kirkjugarðinum og líkist vængbrotnum hrafnsunga? Hefurðu gist í svörtu herbergjunum á Hótel Borg? Og veistu hvað er á bak við kirkjuna í Landakoti?
Þegar Íslendingar yfirgáfu sveitirnar tóku þeir draugana með sér, og líka þörfina fyrir að koma á þá böndum með sögum. Válynd veður, náttúruhamfarir, fátækt og einangrun hafa löngum verið frjór jarðvegur fyrir hvers kyns volæði, ótímabæran dauða – og týndar sálir.
Reimleikar í Reykjavík er byggð á ítarlegum viðtölum við lifandi og í sumum tilfellum dána Íslendinga. Hér birtast í fyrsta sinn nokkrar af alræmdustu draugasögum Reykjavíkur í seinni tíð, í bland við sögulegan fróðleik um borgina.
Steinar Bragi samdi texta bókarinnar en hann og Rakel Garðarsdóttir tóku tugi viðtala við fólk í bænum í leit að bestu, óþekktustu og hryllilegustu draugasögum miðbæjarins. Jóhann Páll Valdimarsson tók myndir fyrir bókina en teikningar í henni eru eftir Sunnu Sigurðardóttur.
Bókin kemur út bæði á íslensku og ensku.
2 umsagnir um Reimleikar í Reykjavík
Bjarni Guðmarsson –
„Við hljótum að dæma draugasögur á því hvort að maður verði pínulítið hræddur. Ég varð það…“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan
Bjarni Guðmarsson –
„… poppuð alþýðuafþreying sem fær óvæntan skáldlegan brodd Steinars Braga.“
Kristjana Guðbrandsdóttir / DV