Plan B
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.490 kr. | Setja í körfu | |
Kilja | 2019 | 341 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2020 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.490 kr. | Setja í körfu | |
Kilja | 2019 | 341 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2020 | 990 kr. |
Um bókina
„Og hvað veit ég um þína erfiðleika, kæri lesandi? Kannski ertu með krabbamein. Um daginn fékk ég hausverk og hélt að ég væri komin með heilaæxli.“
Gyða er afkastamikið skáld sem hefur aldrei komið út á prenti þrátt fyrir margar tilraunir til þess að heilla útgefendur. En nú er hún með frábæra hugmynd að
stórri skáldsögu sem er byggð á skrautlegu fólki sem hún vann með í heimaþjónustu Kaupmannahafnar.
Þegar ritstífla setur strik í reikninginn ákveður Gyða að endurnýja kynnin við gömlu vinnufélagana og til að halda sér í formi skrifar hún um sitt eigið líf,
Plan B. Í Kaupmannahöfn flækist hún fljótt í litríkan lygavef.
Plan B er fyrsta skáldsaga Guðrúnar Ingu Ragnarsdóttur, frumleg og listavel spunnin saga af ferðalagi sem tekur óvænta stefnu. Bráðfyndin og snjöll samtímasaga um væntingar og vonbrigði.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Álfrún Helga Örnólfsdóttir les.
2 umsagnir um Plan B
embla –
„Plan B er hnyttin saga, full af húmor og hreinskilni.“
Ragnhildur Þrastardóttir / Morgunblaðið
gudnord –
„Plan B er fyrirtaks frumraun, skemmtilega stíluð, fyndin og áhugaverð. […] Niðurstaðan er óvenjuleg og óvenju skemmtileg skáldsaga.“
Brynhildur Björnsdóttir / Fréttablaðið