Píslarvottar nútímans
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.290 kr. | Setja í körfu |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.290 kr. | Setja í körfu |
Um bókina
Í Píslarvottum nútímans er fjallað um sögu stjórnmála og trúarbragða í Íran og Írak, og með því að rekja og flétta saman sögu landanna tveggja og reynslu er þess freistað að varpa ljósi á ástandið eins og það blasir við nú. Höfundur skyggnist að baki fyrirsagna fjölmiðlanna og margt óvænt og forvitnilegt kemur í ljós. Hann rökstyður til dæmis að trúin hafi ekki verið miðlægur þáttur í stjórnmálum þessara landa lengst af 20. öldinni, en margt bendi til að vægi hennar eigi eftir að aukast mjög á næstu árum og áratugum. Bent er á að hugmyndafræði svokallaðra íslamista sæki á og meðal annars rakið hvernig klerkaveldið í Íran vegsamaði píslarvættisdauða í stríðinu við Írak og lagði þannig grunninn að sjálfsmorðsárásum íslamista. Einnig er lýst erlendum afskiptum af málefnum Íraks og Írans og hvernig sú beiska reynsla hefur mótað tortryggni íbúa Mið-Austurlanda í garð Vesturlanda. Píslarvottar nútímans er bók sem sætir miklum tíðindum, enda er hér skrifað af mikilli þekkingu á aðgengilegan hátt um málefni sem brenna á allri heimsbyggðinni.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 7 klukkustundir og 37 mínútur að lengd. Pétur Eggerz les.