Paula
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2003 | 336 | 990 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2003 | 336 | 990 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu |
Um bókina
Þegar Paula, dóttir Isabel Allende, veiktist af illvígum sjúkdómi og féll í dá skömmu síðar settist móðir hennar við rúmstokkinn hjá henni og hóf að rita henni bréf sem hún gæti lesið þegar hún vaknaði. Smám saman varð til bók þar sem jafnhliða er rakin átakanleg sjúkdómssaga Paulu og skrautleg fjölskyldusaga þeirra mæðgna þar sem Isabel sjálf, móðir hennar og Paula eru í brennidepli.
Þetta er heillandi saga, full af persónutöfrum skáldkonunnar sjálfrar sem á erfitt með að taka nokkurn hlut alvarlega en neyðist þó hér til að fjalla um erfiðustu andartök ævi sinnar. Gagnrýnendur eru á einu máli um að með þessu verki hafi Allende tekist eins vel upp og með Hús andanna.
Tómas R. Einarsson þýddi.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 17 klukkustundir og 55 mínútur að lengd. Ingunn Ásdísardóttir les.