Um bókina
Bókasafnsvélmennið Dexi hefur svikið lit og stolið ævagömlum fjaðurpenna af bókasafninu. Nú verða frumefnismeistararnir Efrasía og Kai að stöðva hann. En þetta er ekki bara einhver fjaðurpenni; heldur sjálfur ÖRLAGAPENNINN sem býr yfir þeim mætti að geta endurskrifað örlögin.
Efrasía og Kai verða að finna illvirkjann sem stendur á bak við þjófnaðinn á Örlagapennanum, áður en hann verður notaður til að valda ringulreið í Skýjaríkinu.













